Óteljandi möguleikar eru fyrir þá sem eru að velja sér nám í dag, starfsnám, bóknám, verknám, námskeið, nám til ýmissa réttinda. Nám hérlendis eða erlendis. VALið er þitt!
Það getur verið gott að fá aðstoð við námsval þar sem nám er skuldbinding til ákveðins tíma og jafnvel háum fjármunum eytt í námið svo mikilvægt er að velja vel.
Sem náms- og starfsráðgjafi þreytist ég ekki á að segja frá því að það skiptir máli að velja nám sem hæfir ÞÍNUM áhuga. Því nær sem námið er þínu áhugasviði, því líklegri ertu til að finnast námið skemmtilegt og ná þar af leiðandi árangri.