Markþjálfun

Markþjálfun er fyrir fólk sem vill ná árangri og vill skýrari framtíðarsýn.

Stundum er gott að fá aðstoð við að koma auga á styrkleika sína og sjá hvernig maður getur nýtt þá best. Markþjálfun hjálpar einstaklingum að sjá nýjar lausnir og tækifæri í átt að markmiðum sínum. 

Markþjálfi veitir ekki ráð en aðstoðar einstaklinginn við að finna sjálfur bestu lausnina. Markþjálfi beitir viðtalstækni, kraftmiklum spurningum og verkefnum til að beina einstaklingum að bestu lausninni fyrir sig á þessum tímapunkti.