Ert þú í starfsleit og þarft aðstoð við það? Hvort sem þú ert að leita að þínu fyrsta starfi, koma aftur til baka í starf eftir fæðingarorlof, veikindi, starfsendurhæfingu eða hreinlega vilt skipta um starf af einhverjum ástæðum þá ert þú á réttum stað. VALið er þitt!
Ég get boðið upp á aðstoð við að finna út hvar áhuginn þinn liggur og get hjálpað við ferilskrárgerð, gerð kynningarbréfs, skráningu á atvinnuleitarsíður og gerð umsóknar.