
Þitt val er stofnað af Arnbjörgu Ösp Matthíasdóttur sem hefur yfir 14 ára reynslu af ráðgjöf til einstaklinga á tímamótum í lífi sínu. Hvort heldur þeirra sem vilja breyta til varðandi atvinnu, nám eða skipuleggja líf sitt varðandi heilsutengda þætti eins og hreyfingu, svefn, næringu, jafnt andlega sem og líkamlega, eða að draga úr streitutengdum þáttum og því að setja sjálfum sér og öðrum mörk.
Arnbjörg skoðar og vinnur með VAL einstaklinga, markmið, vonir og þrár. Hún hjálpar einstaklingum að koma auga á styrkleika sína, hvernig hægt sé að nota styrkleikana til að yfirvinna hindranir og VELJA sér viðhorf inn í hvern dag.
Arnbjörg er með meistaragráðu í náms- og starfsráðgjöf frá HÍ, B.ed gráðu í kennslu frá sama skóla auk markþjálfunarnáms.
Grein birt í Heimildinni í apríl 2024
Ef þú hefur einhverjar spurningar endilega hafðu samband til að fá frekari upplýsingar eða til að panta tíma. Ég hef samband um hæl.